Skiptinemi til eins árs

Einn áhrifamesti þáttur alþjóðaþjónustu Rótarýhreyfingarinnar eru nemendaskipti sem standa til boða börnum rótarýfélaga jafnt sem öðrum.

Skiptinemar þurfa að vera orðnir 16 ára en ekki eldri en 18 1/2 árs þann 1. september árið sem dvölin erlendis hefst.

Skiptinemarnir dveljast eitt skólaár í gestgjaalandinu á heimilum rótarýmannna eða á öðrum heimilum sem rótarýmenn velja.

Á heimsvísu fara árlega yfir 8.000 ungmenni sem skiptinemar á vegum Rótarýhreyfingarinnar og dvelja í yfir 100 löndum.

Ungmennin fá dvalarleyfi í heimsóknarlandinu til að stunda nám en fá ekki rétt til að stunda atvinnu.

Ætlast er til að skiptin séu gagnkvæm þannig að þeir klúbbar sem senda nemendur utan taki á móti jafnmörgum í staðinn.

  • Aldur 16 til 19 ára
  • Dvölin er 10-12 mánuðir (eitt skólaár) á 1 til 4 heimilum
  • Gagnkvæm skipti milli Rótarýklúbba

Umsóknarfrestur er til 1. desember ár hvert

Ávinningur nemendaskipta er ótvíræður því nemandinn:

  • Lærir tungumál
  • hann kynnist menningu framandi þjóða
  • öðlast reynslu daglegs lífs í framandi landi
  • stofnar til ævilangrar vináttu við fjölskyldur og skólafélaga
  • kynnist hugsjón Rótarý í verki
  • er þátttakandi í starfi rótarýklúbbs
  • er rótarýfélagi framtíðarinnar.

Góður skiptinemi er góð landkynning og framlag til friðar í heiminum.

Nánari upplýsingar má fá á youth@rotary.is
eða í síma 856 5909, Klara Lísa.

Related Images: